Færsluflokkur: Bloggar
4.6.2007 | 13:46
Ný Heimasíða
Jæja, pabbi vildi endilega að ég fengi mér betri heimasíðu. Þannig að ég er flutt yfir á Barnanet, samt aldrei að vita nema að pabbi fari að blogga aftur, víst þessi síða er til
Endilega kíkið á mig hér eða http://www.barnanet.is/bernodiasif
Kveðja Bernódía Sif og mamma ritari
P.s. komnar nokkrar nýjar myndir inn á barnanetssíðuna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2007 | 16:41
Nafnið mitt Bernódía Sif
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.5.2007 | 18:09
Nýtt albúm
Við vorum að henda inn nýju albúmi (3-4 vikna). En við vorum að fá fullt af fötum frá ömmu og afa í Köben og eru nokkrar myndir af prinsessunni í þeim fötum Takk fyrir það elsku amma og afi
Annars er allt fínt að frétta. Litla snúlla er reyndar búin að sofa frekar lítið á daginn og kvöldin, en sem betur fer er hún alls ekki óróleg þessi skvísa. En það verður bara aðeins minna úr verki hjá mömmu á meðan hún vakir svona en það er allt í þessu fína. Við, mæðgurnar, eyðum bara deginum í að spjalla við hvor aðra
Við fórum í smá bíltúr í góða veðrinu í dag og svo endaði pabbi á því að baka vöfflur handa mömmu jummý. Vikan fer svo í að undirbúa skírnina, en svo koma flestir til Eyja á föstudaginn. Það verður sko gaman að fá alla hingað aftur til Eyja. Talandi um að koma aftur til Eyja, þá er Birgir Már & co. að flytja hingað og kemur hann með búslóðina sína í kvöld. En þau verða alkomin í vikunni og óskum við þeim hjartanlega velkomin á paradísar eyjuna okkar.
Kveðja frá dúkkuhúsargenginu á Hvítingavegi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.5.2007 | 13:16
Loksins e-h að frétta!
Jæja, hvernig væri að segja fréttir frá okkur dúkkuhúsargenginu á Hvítingaveginum!
Eins og sá má á blogg færslunum erum við enn í lamasessi yfir þessum óvæntu heimsóknum sem komu okkur svo skemmtilega á óvart
Litla pæjan er búin að vera eins og engill síðan hún kom í heiminn Hún sefur sína 3-4 tíma og svo vakir hún í 2-3 tíma og spjallar spjallar við okkur. Það er víst ekki hægt að hafa þetta betra hún er bara eins og pöntuð úr pöntunarlista, hehe.
Eina vesenið er búið að vera stríðið við vigtina hjá prinsessunni. En hún hélt áfram að léttast frekar mikið eftir að við komum heim af spítalanum. Þannig að ljósurnar eru búnar að vera í heimsókn hjá okkur annan hvern dag í síðustu viku. En núna er snúllan farin að þyngjast vel og er að ná fæðingar þyngd sinni, með hjálp þurrmjólkurinnar
Útlitið hefur breyst mikið á prinsessunni eftir að allur bjúgurinn fór að renna af henni, og segja flestir núna að hún sé alveg eins og pabbinn! En mamman segist allavega enn eiga þessar mjúku og fínu bollukinnar
Vorum að setja inn nýtt albúm (2-3 vikna), endilega kíkið á það og látið í ykkur heyra
Kveðja mammsý og litli kúrurass
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.5.2007 | 12:34
Óvæntar heimsóknir
Já það er búið að vera mikið af heimsóknum í litla kotið undanfarna daga og er ég búinn að fá tvær mjög óvæntar heimsóknir sem toppa allt. Fyrst kom María Frænka sem gerði sér ferð til Eyja dagsferð því hún gat ekki beðið með að sjá mig. Kom hún okkur algjörlega í opna skjöldu þegar hún hoppaði fyrir framan okkur þegar við vorum að ná í vagninn minn niður í Miðstöð.
Og svo í morgun komu óvæntir gestir alla leið frá Kaupmannahöfn. Litla fjölskyldan lá bara enn í bólinu þegar bankað var á dyrnar, og var pabbi ekki alveg að nenna niður að opna en bankið ágerðist bara þannig að honum var ekki til setunar boðið en að rífa sig fram úr og opna. Og HEI nei bíddu ÞIÐ hvað eru þið að gera hér voru þið ekki í Köben í gær að tala við okkur En jú Afi & Amma skelltu sér bara á flugvöllinn eftir símtalið við mömmu og pabba, flugu til Íslands og tóku svo fyrsta flug til Eyja í morgun. Svona heimsóknir eru bara velkomnar Og finnst mér rosa gott að kúra með afa og ömmu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2007 | 13:51
Heima er bezt
Jæja þá erum við mæðgur komnar heim af spítalanum. Það var rosalega gott að geta verið svona lengi inni, og ég segi að það séu algjör forréttindi að geta átt barn hérna í Eyjum. Þetta var eins og að liggja inni á 5 stjörnu hóteli, þjónustan og aðstæðan var svo flott á spítalanum. En samt rosagott alltaf að komast heim
Í gær fengum við fullt af fólki í heimsókn, Sveinn, Jenný og Júlíana komu með færandi hendi. Júlíana og Ársæll gáfu snúllunni bangsa og húfu sem var vígð strax eftir að þau fóru. Því þá fór fjölskyldan í smá bíltúr Svo kom Júlíana með gamlan bangsa sem ég hafði átt síðan ég var lítil, það var voða gaman af því og mamman fór aftur í barndóm aftur .
Síðan kom Guðný Togga og gaf snúllunni gallabuxur og skyrtu. Og svo kíktu Jón og Júlía við en þau voru í göngu með Kristján Loga og komu við í leiðinni.
Annars gengur lífið bara vel hérna á Hvítingaveginum. Snúlla sefur mjög vel og dugleg að drekka, þannig að það er ekki hægt að kvarta undan henni. Hún er alveg ydisleg í alla staði og erum við foreldrarnir enn að átta okkur á því hvað við erum heppin að EIGA þennan gullmola
Ég ætla að láta þetta nægja í bili áður en ég fer að vera allt of væmin, hehe. Og takk fyrir allar kveðjurnar, bæði gegnum netið, símann og heimsóknirnar.
Kveðja Anita mamma setjum inn fleirri myndir á eftir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2007 | 12:25
Húhaaa lítil eyjapæja komin í heiminn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.1.2007 | 14:42
Fyrsta bloggfærsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Tenglar
eitthvað skemmtilegt
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar